Fréttasafn
Kynningarfundir um drög að tillögu verkefnisstjórnar
Verkefnisstjórn 3. áfanga rammaáætlunar mun ganga frá drögum að tillögum sínum um flokkun virkjunarkosta þann 30. mars nk. Til að auðvelda almenningi og hagsmunaaðilum að kynna sér drögin efnir verkefnisstjórn til kynningarfunda, sem hér segir:
- 31.3. - Reykjavík, Kaldalón í Hörpu, kl. 14-16.
- 6.4. - Grindavík, Gjáin, kl. 20-22
- 7.4. - Kirkjubæjarklaustur, félagsheimilið Kirkjuhvoll, kl. 16:30-18:30
- 7.4. - Selfoss, Hótel Selfoss, kl. 20:30-22:30
- 11.4. - Stórutjarnir, Stórutjarnaskóli, kl. 20-22
- 12.4. - Akureyri, Hamrar í Hofi, kl. 12-14
- 12.4. - Varmahlíð, Miðgarður, kl. 20-22
- 13.4. - Nauteyri við Ísafjarðardjúp, Steinshús, kl. 20-22
Á fundunum mun verkefnisstjórn kynna tillögudrögin og sitja fyrir svörum að kynningu lokinni. Boðið verður upp á kaffiveitingar (léttan hádegisverð á fundinum á Akureyri). Fundirnir eru öllum opnir og ekki er þörf á að skrá sig.
Síðu breytt 22.03.2016 kl. 15:04. Fundarstaður á Kirkjubæjarklaustri uppfærður.
Síðu breytt 05.04.2016 kl. 23:50. Hlekkir á facebook-viðburði settir inn.