Húsfyllir á málþingi um vindorku
Fullt var út úr dyrum á málþingi um vindorku sem verkefnisstjórn 4. áfanga rammaáætlunar stóð fyrir í samvinnu við umhverfis- og auðlindaráðuneytið í gær. Á málþinginu var fjallað um ólíkar hliðar vindorku og þau áhrif sem vindorkumannvirki hafa á umhverfi og náttúru.
Aðalgestur málþingsins var Graham Marchbank sem sagði frá
reynslu Skota af skipulagi vindorkuvera. Þá var fjallað um vindorku og
skipulagsmál, sýn sveitarfélaga á framtíðarskipulag vindorku hér á landi,
fjallað var um umhverfisáhrif vindorkuvera, afstöðu orkufyrirtækja sem og
viðhorf ferðamanna og heimamanna.
Líflegar umræður sköpuðust á málþinginu og var ljóst af aðsókn og umræðum að mikill áhugi er á málefnum vindorkuvera hér á landi.
Fundinum var streymt beint á netinu. Hægt er að nálgast upptöku frá fundinum á vef rammaáætlunar. Á næstu dögum verða upptökur af einstökum erindum gerðar aðgengilegar hér á vefnum.