Fréttasafn

Verkefnastjórn rammaáætlunar kynnir drög að tillögum í samráðsgátt

2 vikna forsamráð

4.12.2023

Verkefnastjórn rammaáætlunar kynnir drög að tillögum um mat og flokkun á virkjunarkostunum Héraðsvötn, Skrokkölduvirkjun, Kjalölduveita, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun inn á samráðsgátt. 

Í lögum um verndar og orkunýtingaráætlun eru skilgreind tvö umsagnarferli. Þetta er fyrra umsagnarferlið um drög að tillögum verkefnisstjórnar, sem gert er ráð fyrir að taki tvær vikur. Í framhaldi af því er svo gert ráð fyrir að hefja formlegt 12 vikna umsagnarferli um tillögur verkefnisstjórnar.

Linkur drögin: Samráðsgátt.is