Fréttasafn

Verkefnastjórn rammaáætlunar kynnir tillögur í samráðsgátt

12 vikna samráð

22.12.2023

Verkefnastjórn rammaáætlunar kynnir tillögur um mat og flokkun á virkjunarkostunum Héraðsvötn, Skrokkölduvirkjun, Kjalölduveita, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun inn á samráðsgátt.

Í lögum um verndar og orkunýtingaráætlun eru skilgreind tvö umsagnarferli. Fyrra umsagnarferlið um drög að tillögum verkefnastjórnar stóð í 2 vikur, eða frá 4. desember til 18. desember.

Seinna umsagnarferlið um tillögur verkefnisstjórnar, hefst föstudaginn 22. desember 2023 og mun standa til miðnættis föstudaginn 15. mars 2024. Verkefnastjórn óskar því eftir umsögnum um tillöguna í samræmi við seinni hluta 3. mgr. 10. gr. laga nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun. 

Linkur á tillögur: Samráðsgátt.is