Fréttasafn

Verkefnisstjórn rammaáætlunar kynnir tillögur í samráðsgátt

12 vikna samráð

8.7.2024

Verkefnisstjórn rammaáætlunar kynnir tillögur að flokkun virkjunarkostanna Bolaalda, Tröllárvirkjun, Hvanneyrardalsvirkjun, Skúfnavatnavirkjun og Hamarsvirkjun inn á samráðsgátt.

Í lögum um verndar og orkunýtingaráætlun eru skilgreind tvö umsagnarferli. Fyrra umsagnarferlið um drög að tillögum verkefnisstjórnar stóð í 2 vikur, eða frá 7. til 21. júní 2024.

Seinna umsagnarferlið um tillögur verkefnisstjórnar, hófst föstudaginn 5. júlí 2024 og mun standa til miðnættis föstudaginn 27. september 2024. Verkefnisstjórn óskar því eftir umsögnum um tillöguna í samræmi við seinni hluta 3. mgr. 10. gr. laga nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun. 

Linkur á samráðsgátt:  Samráðsgátt.is