Fréttasafn

Verkefnisstjórn rammaáætlunar kynnir drög að flokkun tíu vindorkukosta í samráðsgátt

3 vikna forsamráð

12.12.2024

Verkefnisstjórn rammaáætlunar kynnir drög að flokkun tíu vindorkuverkefna, þ.e. Alviðra, Garpsdalur, Hnotasteinn, Hrútavirkjun, Hrútmúlavirkjun, Mosfellsheiðarvirkjun I, Mosfellsheiðarvirkjun II, Reykjanesgarður, Sólheimar og Vindheimavirkjun.

Í lögum um verndar og orkunýtingaráætlun eru skilgreind tvö umsagnarferli. Þetta er fyrra umsagnarferlið um drög að tillögum verkefnisstjórnar, sem gert er ráð fyrir að taki þrjár vikur. Í framhaldi af því er svo gert ráð fyrir að hefja formlegt 12 vikna umsagnarferli um tillögur verkefnisstjórnar.

Linkur á samráðsgátt:  Samráðsgátt.is