28. fundur faghóps 1, 30.10.2020
Fundarfrásögn
Faghópur 1
í 4. áfanga rammaáætlunar um verndun og orkunýtingu landsvæða
28. fundur, 30. október 2020 kl. 13:30-15:40
Fjarfundur á Teams
FUNDARGERÐ
Mætt úr faghópi: Jón S. Ólafsson (JSÓ), Kristján Jónasson (KS), Sólborg Una Pálsdóttir (SUP), Tómas Grétar Gunnarsson (TGG), Þorvarður Árnason (ÞÁ) og Ása L. Aradóttir (ÁLA) er ritaði fundargerð.
Aðrir: David C. Ostman (DCO), starfsmaður faghóps
Fundarfrásögn
- Fundargerð 27. fundar samþykkt óbreytt.
- Farið var yfir stöðu myndgagna sem aflað hefur verið fyrir faghóp 1, einkum í sumar og haust. Um er að ræða mikið gagnamagn sem æskilegt er að hýsa á einum stað, helst á vegum UAR. ÁLA falið að fylgja málinu eftir við ráðuneytið.
- Afmörkun matssvæða fyrir virkjanahugmyndir í vatnsafli og jarðvarma liggur nokkurn vegin fyrir. ÞÁ og DCO kynntu frumniðurstöður greininga á mismunandi sviðsmyndum varðandi afmörkun matssvæða fyrir virkjanahugmyndir í vindorku, sem voru ræddar ítarlega í kjölfarið. Niðurstaðan verður mögulega stefnumarkandi fyrir síðari áfanga RÁ og því mikilvægt að hún byggi á vandaðri greiningu. Ákveðið að halda umræðunni áfram á næsta fundi faghópsins.
- Faghópurinn fór yfir stöðu gagna varðandi einstök viðföng fyrir þá 13 virkjunarkosti sem fjallað var um á fundi verkefnisstjórnar og faghópa 13. október. Með þeim gögnum sem safnað hefur verið í sumar og haust ætti að vera hægt að meta alla virkjunarkostina. Hins vegar á eftir að leggja gögnin fyrir lögbundna umsagnaraðila (sjá næsta lið).
- Taka þarf saman ítarlega heimildalista fyrir hvern virkjunarkost sem er til umfjöllunar og senda ásamt kortum af matssvæði til lögbundinna umsagnaraðila. Þessu verkefni þarf að ljúka á næstu vikum til að umsagnirnar liggi fyrir áður en matsvinnan hefst fyrir alvöru.
Fleira var ekki tekið fyrir og næsti fundur ákveðinn 13. nóv.