31. fundur faghóps 1, 16.12.2020
Fundarfrásögn
Faghópur 1
í 4. áfanga rammaáætlunar um verndun og orkunýtingu landsvæða
31. fundur, 16. desember 2020 kl. 10:30-12:00
Fjarfundur á Teams
FUNDARGERÐ
Mætt úr faghópi: Kristján Jónasson (KS), Sólborg Una Pálsdóttir (SUP), Tómas Grétar Gunnarsson (TGG), Þorvarður Árnason (ÞÁ) og Ása L. Aradóttir (ÁLA) er ritaði fundargerð.
Aðrir: David C. Ostman (DCO), starfsmaður faghóps
Forföll: Jón S. Ólafsson (JSÓ)
Fundarfrásögn:
- Tímalína verkefnisstjórnar kynnt og farið yfir þýðingu hennar fyrir vinnu faghóp 1.
- Samtekt á gögnum og heimildum fyrir einstaka virkjunarkosti hefur tafist og útlit fyrir að faghópurinn nái ekki að ganga frá þeim fyrr en í janúar. Ákveðið að ÁLA og SUP hafi samband við lögboðna umsagnaraðila á næstu dögum og fari yfir ferlið með þeim.
- Röðun virkjunarkosta. Þar sem fáir virkjunarkostir eru til umfjöllunar í 4. áfanga er áhugi á að raða þeim með stærra mengi, væntanlega virkjunarkostum úr 3. áfanga. Komast þarf að niðurstöðu um útfærslu á þessu fyrir lok janúar.
- Afmörkun matssvæða fyrir vatnsaflskosti samþykkt. Einnig rætt um afmörkun matsvæðis fyrir stækkun jarðvarmaorkuvers í Svartsengi. Ákveðið að KJ gangi frá henni í samráði við DCO, og taki saman þær forsendur sem eru lagðar til grundvallar. DCO setji upplýsingar um afmörkun matssvæða inn á Teams.
- Ræddur listi yfir gögn og aðrar upplýsingar fyrir Alviðru, sem virkjunaraðili sendi formanni. ÁLA fylgir eftir.
- Rætt var um vistun og frágang gagna sem aflað er á vegum faghópsins. Gera þarf ráð fyrir vinnu við að ganga frá og lýsa gögnunum þannig að þau nýtist sem best, og þá sérstaklega í síðari áföngum RÁ. Þá var rætt um skil og frágang á vinnugögnum—aðgengi að vinnugögnum er sýna forsendur ákvörðunartöku eru í samræmi við reglur um opna stjórnsýslu en jafnframt þarf að gæta þess að birta ekki opinberlega upplýsingar sem trúnaður skal ríkja um samkvæmt lögum.
- Hugmyndum faghópsins um afmörkun matssvæða fyrir vindorkukosti var tekið vel af verkefnisstjórn og lögð áhersla á vandað ferli og samráð. Næsta skref er að hafa samband við Skipulagsstofnun og helst að fá viðkomandi sérfræðinga frá þeim inn á fund faghópsins í byrjun janúar.
- Önnur mál. ÁLA greindi frá kynningu á Vatnaáætlun fyrir 2022-2027 og mikilvæga snertifleti við viðföng faghóps 1. Stefnt að því að fá stutta kynningu á áætlunini og og samtal við viðkomandi í janúar.
Fleira ekki tekið fyrir. Næsti fundur áætlaður snemma í janúar.