30. fundur faghóps 2, 21.12.2020
Fundarfrásögn
Faghópur 2
4. áfangi rammaáætlunar um verndun og orkunýtingu landsvæða
30. fundur, 21.12 2020, kl. 13:00 – 15:00.
Haldinn í netheimum
Mætt: Anna Dóra Sæþórsdóttir (ADS), Anna G. Sverrisdóttir (AGS), Guðni Guðbergsson (GG), Einar Torfi Finnsson (ETF), Ólafur Örn Haraldsson (ÓÖH), Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir (SSJ) og Sveinn Runólfsson (SR).
Guðmundur Jóhannesson (GJ) boðaði forföll.
Fundarritari: ADS
Fundur settur kl. 13:00
Umræða um mat á Svartsengi
Fyrir fundinn hafði ETF sent drög að umsögn faghópsins. Á fundinum voru gerðar lítilsháttar breytingar og umsögnin samþykkt.
Mat á virði svæða
Hafist var handa við að leggja mat á virði ferðasvæða.
Fleira ekki rætt. Fundi slitið kl. 15:00.