23. fundur faghóps 3, 25.05.2020
23. fundur í
faghópi 3 um mat á samfélagslegum áhrifum virkjunarkosta
25. maí 2020 kl. 10:30 – 11:40
á samskiptamiðlinum Microsoft Teams
Mætt: Hjalti Jóhannesson, Jón Ásgeir Kalmansson, Magnfríður Júlíusdóttir og Sjöfn Vilhelmsdóttir.
Fundargerð
Rætt um undirbúning rannsókna faghópsins á næstu vikum og mánuðum vegna hluta þeirra virkjunarkosta sem sendir hafa verið verkefnisstjórn 4. áfanga Rammaáætlunar. Ákveðið að vinna rannsóknaráætlun og þjónustubeiðni vegna þessara rannsókna.
Rætt um þörfina á að skýra betur tímarammann – hvenær niðurstöður rannsókna faghópsins þurfi að liggja fyrir.