6. fundur faghóps 3, 11.01.2019
Fundarfrásögn
Faghópur 3
í 4. áfanga rammaáætlunar um verndun og orkunýtingu landsvæða
6. fundur 11. janúar 2019 kl. 10:00-12:00
Í húsnæði Menntavísindasviðs H.Í., Skipholti 37
Mætt: Jón Ásgeir Kalmansson, Magnfríður Júlíusdóttir og Sjöfn Vilhelmsdóttir. Hjalti Jóhannesson var í netsambandi frá Akureyri.
- Fundargerð síðasta fundar lögð fram.
- Rætt um gögn er bárust frá Þjóðskrá í desember yfir fasteignamat orkumannvirkja á Íslandi. Ákveðið að óska eftir því við Þjóðskrá að gögnin verði unnin þannig að þau verði aðgengileg með myndrænum hætti.
- Unnið að umsókn vegna rannsóknar á Norð-Austurlandi. Stefnt að því að drög að umsókn verði tilbúin að tæpum tveimur vikum liðnum.
- Næsti fundur ákveðinn þann 23. janúar.
- Fundi slitið um kl. 12:00.