55. fundur, 17.02.2021
Fundarfrásögn
Verkefnisstjórn 4. áfanga rammaáætlunar
um vernd og orkunýtingu landsvæða
55. fundur 17. febrúar 2021 kl. 09:00-10:00
Fjarfundur á Teams
Mætt voru
Verkefnisstjórn: Guðjón Bragason, Guðrún Pétursdóttir, Guðrún Sævarsdóttir, Hilmar Gunnlaugsson, Magnús Guðmundsson, Þóra Ellen Þórhallsdóttir og Þórgnýr Dýrfjörð
Formenn faghópa: Anna Dóra Sæþórsdóttir, Jón Ásgeir Kalmansson og Sigurður Jóhannesson.
Umhverfisráðuneyti: Herdís Helga Schopka
Boðuð forföll: Ása L. Aradóttir
Umræðuefni fundarins var skýrslan sem verkefnisstjórn mun skila til UAR í byrjun apríl.
Rætt var um efnistök og uppsetningu og ákveðið að skýrslan fjalli í meginatriðum um eftirtalin atriði:
- Skipun verkefnisstjórnar og faghópa
- Vinnuferlið frá skipun verkefnisstjórnar, óljóst starfsumhverfi rammaáætlunar m.a. við að fá virkjanakosti til umfjöllunar, matsferli á virkjanakostum og niðurstöður faghópa.
- Röðun virkjanakosta í RÁ4
- Vinna að
- Bættum aðferðum við mat á áhrifum á samfélög
- Bættum aðferðum við mat á hagrænum áhrifum
- Að skilvirkri vistun og miðlun gagna með kortavefsjá
- Aukinni þekkingu á virkjun vindorku
- Samantekt rannsóknarverkefna sem 4. áfangi rammaáætlun hefur staðið að.
Þórgnýr Dýrfjörð, Magnús Guðmundsson og Guðrún Pétursdóttir verða í ritnefnd, formenn faghópa eru ábyrgir fyrir sínum skýrslum, en aðrir í verkefnisstjórn taka að sér verkefni eftir þörfum.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl 10
GP ritaði fundargerð