67. fundur faghóps 1, 4.3.2024

Fundarfrásögn

Fundur faghóps 1 

Í 5. áfanga rammaáætlunar um verndun og orkunýtingu landsvæða (RÁ). 

 67. fundur – 4. mars 2024. 

Fundur á Hafrannsóknastofnun 

Mætt: Hafdís Hanna Ægisdóttir (HHÆ) formaður, Birna Lárusdóttir (BL),Guðbjörg R. Jóhannesdóttir (GRJ), Guðný Zoëga (GZ), Jón Einar Jónsson (JEJ), Jón S. Ólafsson (JSÓ), Kristín Svavarsdóttir (KS), Kristján Jónasson (KJ) Forföll: Edda Ruth Hlín Waage (ERW), Ívar Örn Benediktsson (ÍÖB) 

Fundarritari: BL 

Fundur hófst kl. 13 

1. KS kynnti gögn og matsvinnu fyrir vistkerfi, plöntur og jarðveg v/ Bolaöldu 

2. Farið var yfir sameiginleg skjöl sem faghópsmeðlimir þurfa að ljúka við að færa inn í, bæði einkunnagjöf og stuttan rökstuðning. 

3. Farið var stuttlega yfir ný gögn frá Michaelu Hrabalikovu sem varða afmörkun áhrifasvæða fyrir vatnsaflsvirkjanir. 

Fundi slitið kl. 17.