70. fundur faghóps 1, 2.4.2024
Fundarfrásögn
Fundur faghóps 1
Í 5. áfanga rammaáætlunar um verndun og orkunýtingu landsvæða (RÁ).
70. fundur – 2. apríl 2024.
Fjarfundur
Mætt: Hafdís Hanna Ægisdóttir (HHÆ) formaður, Birna Lárusdóttir (BL), Guðný Zoëga (GZ), Ívar Örn Benediktsson (ÍÖB),Jón Einar Jónsson (JEJ), Jón S. Ólafsson (JSÓ), Kristín Svavarsdóttir (KS), Kristján Jónasson (KJ) Forföll: Edda Ruth Hlín Waage (ERW), Guðbjörg R. Jóhannesdóttir (GRJ). Gestur fundarins var Páll Jensson (PJ), prófessor í iðnaðarverkfræði og formaður í faghópi 4.
Fundarritari: BL
Fundur hófst kl. 9
Á fundinum fór PJ yfir aðferðir í AHP greiningu. M.a. var farið yfir uppruna aðferðarinnar, kosti hennar og galla. Í framhaldinu var rætt vítt og breitt um niðurstöður AHP greiningar í fyrri áföngum RÁ, vogtölur og fleira. Ákveðið var að HHÆ hefði samband við fróða einstaklinga úr fyrri áföngum RÁ til að grennslast fyrir um vogtölur og uppruna þeirra.
Fundi slitið kl. 10:45.