72. fundur faghóps 2, 24.09.2024

Fundarfrásögn

Faghópur 2

5. áfangi rammaáætlunar um verndun og orkunýtingu landsvæða

72. fundur, 24.09.2024, kl. 15:00 – 16:30

Fundur haldinn í netheimum

Mætt: Bryndís Marteinsdóttir (BM), Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir (SSJ), Anna G. Sverrisdóttir (AGS) og Hjörleifur Finnsson (HF).

Anna Dóra Sæþórsdóttir (ADS), Einar Torfi Finnsson (ETF), Unnur Svavarsdóttir (US) og Guðni Guðbergsson (GG) boðuðu forföll.

Fundarritari: BM

Fundur settur kl. 15:00

Dagskrá:

1. Staða mála frá verkefnisstjórn.

SSJ kynnti skýrslu faghópsins um virkjanakosti fyrir verkefnastjórn í seinustu viku.

2. Klára endurskoðun á áhrifasvæði fyrir virkjun við Hágöngur.

Farið var yfir áhrifasvæði virkjunarinnar og þau uppfærð.

3. Skýrslan vatn og jarðvarmi – drög að svörum við athugasemdir.

Byrjað var að fara yfir drög að svörum við athugasemdum.

Fundi slitið kl. 16:30