74. fundur faghóps 2, 15.10.2024

Fundarfrásögn

Faghópur 2

5. áfangi rammaáætlunar um verndun og orkunýtingu landsvæða

74. fundur, 15.10.2024, kl. 15:00 – 16:20.

Fundur haldinn í netheimum

Mætt: Bryndís Marteinsdóttir (BM), Einar Torfi Finnsson (ETF), Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir (SSJ), Anna G. Sverrisdóttir (AGS), Guðni Guðbergsson (GG), Unnur Svavarsdóttir (US) og Hjörleifur Finnsson (HF)

Anna Dóra Sæþórsdóttir (ADS) boðaði forföll.

Fundarritari: BM

Fundur settur kl. 15:00

Dagskrá:

1. Staða mála frá verkefnisstjórn.

Engar fréttir frá verkefnastjórn.

2. Skýrslan vatn og jarðvarmi – drög að svörum við athugasemdum.

Farið var yfir drög að svörum við athugasemdum og greinargerðin kláruð. Greinargerðin verður send á verkefnastjórn síðar í vikunni.

Fundi slitið kl. 16:20