11. fundur faghóps 3, 16.09.2022
Fundarfrásögn
11. fundur í
faghópi 3 um mat á samfélagslegum áhrifum virkjunarkosta,
16. september 2022 kl. 10:00 – 10:30 á Teams.
Mætt: Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, Hjalti Jóhannesson, Jón Ásgeir Kalmansson, og Sjöfn Vilhelmsdóttir.
Fundargerð
Rætt um gögn sem faghópurinn fékk send frá EM Orku ehf. vegna vindorkugarðs í Garpsdal.
Rætt um endurskoðun spurningalista frá árinu 2016 vegna fyrirhugaðrar skoðanakönnunar sem gerð yrði að beiðni faghópsins á komandi vikum eða mánuðum. Frekari umræðu um listann frestað til næsta fundar.
Ákveðið að næsti fundur verði 7. október kl. 10.