47. fundur faghóps 3, 28.12.2023

Fundarfrásögn

47. fundur í faghópi 3 um mat á samfélagslegum áhrifum virkjunarkosta, 

28. desember 2023 kl. 10:00 – 11:10 á Teams.

Mætt: Hjalti Jóhannesson, Jón Ásgeir Kalmansson og Sjöfn Vilhelmsdóttir.

Fundargerð

1. Fundur um skýrslu um matsvísa og frummat fimm orkukosta; Hamarsvirkjunar, Hvanneyrardalsvirkjunar, Skúfnavatnavirkjunar, Tröllárvirkjunar og Bolaöldu. Ákveðið að nauðsynlegt sé að halda annan vinnufund til að fara yfir lokadrög skýrslunnar, til dæmis varðandi samræmingu og rökstuðning vægiseinkunna fyrir viðföng hvers orkukosts.

2. Ákveðið að næsti fundur verði föstudaginn 5. janúar kl. 10 á Keldnaholti.