55. fundur faghóps 3, 1.3.2024
Fundarfrásögn
55. fundur í faghópi 3 um mat á samfélagslegum áhrifum virkjunarkosta,
1. mars 2024 kl. 9:00 – 9:30 á Teams.
Mætt: Hafsteinn Birgir Einarsson, Hjalti Jóhannesson og Jón Ásgeir Kalmansson.
Fundargerð
1. Farið yfir atriði í tengslum við framsetningu á niðurstöðum faghópsins varðandi mat á samfélagslegum áhrifum fjögurra vatnsaflskosta og eins jarðvarmakosts. Komist að niðurstöðu um hvernig framsetningunni skuli háttað.
2. Ákveðið að næsti fundur verði fimmtudaginn 14. mars kl. 10:00.