7. fundur faghóps 3, 09.06.2022
Fundargerð
7. fundur í
faghópi 3 um mat á samfélagslegum áhrifum virkjunarkosta,
9. júní 2022 kl. 10:00 – 11:10 á Teams.
Fundargerð
- Rætt um mögulegan fund með Landsneti. Beðið svara frá Jóni Geir um hvort verkefnisstjórn vilji vera í samfloti við faghópinn um slíkan fund.
- Auk friðlýstra svæða, rætt um áætlanir sveitarfélaga um svæði sem þau vilji vernda af einhverjum ástæðum. Upplýsinga um þetta þurfi að leita hjá einstökum sveitarstjórnum þegar kemur að mati á samfélagslegum áhrifum virkjunarkosta; hvaða væntingar sveitarfélög hafi um friðun og nýtingu tiltekinna svæða í framtíðinni, tengt útivist, vatnsvernd og öðru varðandi lífsgæði íbúa. Faghópurinn geti útbúið lista yfir atriði sem tengjast útivistar- og lífsgæðatengdum þáttum í mati á samfélagslegum áhrifum virkjunarkosta. Talað um rannsóknir Vífils Karlssonar á búsetugæðum víða um land. Einnig rætt um rannsóknir sem gerðar hafa verið á fjárhagslegum ávinningi af verndun hér á landi.
- Beðið svara frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vegna álits á leiðum til að áætla fasteignagjöld vegna orkumannvirkja.
- Rætt um væntanlegan fund með Sveini Margeirssyni um möguleika við fjölnýtingu jarðvarmaorku. Einnig rætt um nýsköpunarfyrirtæki sem eru að starfa á þessu sviði á Reykjanesi, Norð-Austurlandi og í Reykjavík.
- Ákveðið að leita eftir frekari upplýsingum frá orkufyrirtækum um fjölda starfa í tengslum við rekstur virkjana, og staðsetningu þeirra.
- Ákveðið að næsti fundur verði eftir um það bil tvær vikur.