26. fundur verkefnisstjórnar 5. áfanga
Fundarfrásögn
26. fundur verkefnisstjórnar rammaáætlunar, 5. áfanga
Staður: Teams
Tími: 9. nóvember 2022 kl. 14:00-15:40
Mætt:
Vstj: Jón Geir Pétursson (JGP) formaður, Ása L. Aradóttir (ÁLA), Ólafur Adolfsson (ÓA) og Þórgnýr Dýrfjörð (ÞD), Agnes Stefánsdóttir (AS)
Forföll: Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir (GAS)
URN: Herdís Helga Schopka (HHS)
Dagskrá:
Inngangur
Kynningar á vindorkukostum
Greiningar á virkjanakostum í biðflokki
Önnur mál
Fundarfrásögn:
Fundur settur kl. 14:05.
- Inngangur:
- Ákveðið að færa næsta fund verkefnisstjórnar aftur um ca. viku. HHS falið skipulag.
- Kynningar á vindorkukostum: Nú hafa þeir aðilar sem sendu inn tillögur að vindorkukostum í 4. áfanga, sem 5. áfangi er nú með til vinnslu, kynnt fyrirætlanir sínar fyrir faghópum og verkefnisstjórn á Teams-fundum. Einn aðili á þó eftir að kynna. Innihald kynninganna rætt. Verkefnin mjög mislangt komin í undirbúningi. Verkefnisstjórn og formenn faghópa munu funda þegar öllum kynningum er lokið og ræða þar m.a. skipulag vinnu framundan og vinnuröð við mat á vindorkukostum í meðförum faghópa.
- Greiningar á virkjanakostum í biðflokki: Rætt um efnistök og aðferðafræði við endurmat þeim virkjanakostum sem Alþingi setti í biðflokk við afgreiðslu 3. áfanga RÁ í júní sl. Þar er gert ráð fyrir greiningu á þeim efnisþáttum sem Alþingi tilgreindi í sinni afgreiðslu á þingsályktunartillögunni.
- Önnur mál:
- Rætt í framhaldi af kynningunum á vindorkuverkefnunum, eftir samskipti við formenn faghópa, að æskilegt væri að fá kynningar og samtal við aðra aðila en fulltrúa virkjunaraðila. Ákveðið að vinna að því.
- Fleira var ekki rætt.
Fundi slitið kl. 15:40.