27. fundur verkefnisstjórnar 5. áfanga
Fundarfrásögn
27. fundur verkefnisstjórnar rammaáætlunar, 5. áfanga
Staður: Háhyrna, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
Tími: 2. desember 2022 kl. 09:30-12:30
Mætt:
Vstj: Jón Geir Pétursson (JGP) formaður, Agnes Stefánsdóttir (AS), Ása L. Aradóttir (ÁLA), Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir (GAS), Ólafur Adolfsson (ÓA) og Þórgnýr Dýrfjörð (ÞD)
Formenn faghópa: Hafdís Hanna Ægisdóttir, Anna Dóra Sæþórsdóttir, Jón Ásgeir Kalmansson og Páll Jensson, sátu fundinn frá kl. 11:00
URN: Herdís Helga Schopka (HHS) frá kl. 11:00
Dagskrá:
Inngangur
Vindorkukostir
Ýmis verkefni og fjármál
Önnur mál, f.hl.
Formenn faghópa koma til fundar
Formenn faghópa koma á fund
Vindorkukostir
Aðrir kynningarfundir
Verkefni við mat á virkjanakostum
Önnur mál
Fundarfrásögn:
Fundur settur kl. 09:45.
- Inngangur:
- Formaður greindi frá fundi og umræðu um vindorku á fundi hagsmunaráðs Landsnets. Einnig frá fundi með Orkustofnun um gagnaskil til rammaáætlunar.
- Vindorkukostir. Áfram rætt um vindorkuverkefnin sem verkefnisstjórn er með til umfjöllunar og þau sjónarmið sem komu fram í kynningum framkvæmdaaðilanna.
- Ýmis verkefni og fjármál: Rætt um ýmis verkefni sem formenn faghópa og verkefnistjórn hyggjast ráðast í til að meta og flokka virkjanakosti.
- Önnur mál:
- Beiðni Landverndar til verkefnisstjórnar um endurupptöku tveggja virkjunarkosta rædd og formanni falið að móta drög að svari.
- Fyrirspurn þingsmanns til URN um stöðu mála í rammaáætlun rædd og formanni falið að koma á framfæri upplýsingum frá verkefnisstjórn.
- Formenn faghópa koma til fundar, HHS kemur til fundar.
- Vindorkukostir: Rædd ýmis sjónarmið eftir yfirferð á innsendum tillögum og því sem kom fram á kynningafundum virkjanaaðilana, útfrá forsendum hvers faghóps varðandi mat á vindorkuverkefnum. Núna hafa 25 vindorkuverkefni verið skilgreind til rammaáætlunar frá Orkustofnun.
- Aðrir kynningarfundir: Rætt að bjóða öðrum aðilum að kynna faghópum sín sjónarmið varðandi vindorkuuppbygginguna á sama formi og kynningar framkvæmdaaðilana.
- Verkefni við mat á virkjanakostum: Undirbúningur að vinnu við það endurmat sem Alþingi óskaði á virkjanakostum í biðflokki ræddur. Það endurmat á virkjanakostum tengist einstökum faghópum á mismunandi hátt.
- Önnur mál: Engin
Fundi slitið kl. 12:30.