54. fundur verkefnastjórnar, 06.03.2024
Fundarfrásögn
54. fundur verkefnisstjórnar rammaáætlunar, 5. áfanga
Staður: Umhverfisstofnun
Tími: 6. mars 2024 kl. 14:30-16:00
Mætt:
Vstj: Jón Geir Pétursson (JGP) formaður, Agnes Stefánsdóttir (AS), Ása L. Aradóttir (ÁLA), Þórgnýr Dýrfjörð (ÞD) og Ólafur Adolfsson (ÓA).
Forföll: Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir (GAS)
UST: Katrín Sóley Bjarnadóttir (KSB)
Dagskrá:
1. Inngangur
2. Skýrsla um endurmatskosti 3. áfanga
3. Önnur mál
Fundarfrásögn:
1. Inngangur
Ræddur fundur með starfshóp ráðherra um endurskoðun laga um rammaáætlun og eins væntanlega málstofu sem á að halda um endurskoðun laganna 19. mars nk.
2. Skýrsla um endurmatskosti 3. áfanga
Farið yfir stöðu skýrslu verkefnisstjórnar um endurmat virkjunarkosta, en samráðsferli í samráðsgátt lýkur 15. mars nk.
3. Önnur mál
Ákveðið að halda langan vinnufund þann 18. mars nk.