70. fundur verkefnisstjórnar 09.10.2024
Fundarfrásögn
70. fundur verkefnisstjórnar rammaáætlunar, 5. áfanga
Tími: 09.10.2024 kl. 15:00-17:00
Staður: Fjarfundur
Mætt: Vstj: Jón Geir Pétursson (JGP) formaður, Agnes Stefánsdóttir (AS), Ása L. Aradóttir (ÁLA), Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir (GAS), Þórgnýr Dýrfjörð (ÞD) og Ólafur Adolfsson (ÓA)
FH1: Hafdís Hanna Ægisdóttir, formaður (HHÆ) og Jón Einar Jónsson, fuglafræðingur (JEJ)
UST: Katrín Sóley Bjarnadóttir (KSB)
1. Inngangur
Farið yfir stöðu vinnu faghópa við að svara þeim athugasemdum sem bárust við tillögur að flokkun fimm virkjunarkosta í samráðsferli.
2. Kynning faghóps 1 á greiningum á vindorkuverkefnum: Fuglalíf
Kynning formanns FH1 og JEJ í faghópnum á greiningum FH1 á áhrifum vindorkuverkefna á fuglalíf. Umræður.
3. Vindorkuverkefni
Drög að skýrslu verkefnisstjórnar með greiningum og drögum að tillögu að flokkun vindorkuverkefna rædd.
4. Önnur mál
Engin