72. fundur verkefnisstjórnar 23.10.2024

Fundarfrásögn

72. fundur verkefnisstjórnar rammaáætlunar, 5. áfanga

Tími: 23.10.2024 kl. 14:00-16:00

Staður: Fjarfundur

Mætt: Vstj: Jón Geir Pétursson (JGP) formaður, Agnes Stefánsdóttir (AS), Ása L. Aradóttir (ÁLA), Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir (GAS), Þórgnýr Dýrfjörð (ÞD), Ólafur Adolfsson (ÓA), Páll Jensson, formaður faghóps 4 (PJ) og Björn Arnar Hauksson (BAH)

Forföll:

UST: Katrín Sóley Bjarnadóttir (KSB)

1. Inngangur

Farið yfir stöðu vinnu faghópa við að svara þeim athugasemdum sem bárust við tillögur að flokkun fimm virkjunarkosta í samráðsferli.

2. Greiningar faghópa á vindorkuverkefnum: Faghópur 4

Kynning formanns FH4 og BAH á uppfærðri greiningu þeirra á hagkvæmi/arðsemi vindorkuverkefna. Umræður.

3. Mat á vindorkuverkefnum

Drög að skýrslu verkefnisstjórnar með greiningum og drögum að tillögu að flokkun vindorkuverkefna rædd.

4. Önnur mál

Ákveðið að halda langan vinnufund þann 30. október nk.