84. fundur verkefnisstjórnar, 19.03.2025
Fundarfrásögn
84. fundur verkefnisstjórnar rammaáætlunar, 5. áfanga
Tími: 19.03.2025 kl. 15:00-16:00
Staður: Fjarfundur
Mætt: Vstj: Jón Geir Pétursson (JGP) formaður, Agnes Stefánsdóttir (AS), Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir (GAS) og Þórgnýr Dýrfjörð (ÞD)
Fjarverandi: Ólafur Adolfsson (ÓA) og Ása L. Aradóttir (ÁLA)
UOS: Katrín Sóley Bjarnadóttir (KSB)
1. Inngangur
Yfirferð á fundargerðum til samþykktar.
2. Skipulag vinnu framundan
Farið yfir skipulag vinnu og verkefni á borði verkefnisstjórnar fram að lok skipunartímabils hennar í apríl nk.
3. Afmarkanir verndarsvæða
Yfirferð á stöðu vinnu við afmarkanir verndarsvæða sbr. beiðni ráðherra.
4. Önnur mál
Engin