19. fundur faghóps 2, 07.12.2015
Fundarfrásögn
Faghópur 2 í 3. áfanga rammaáætlunar um verndun og orkunýtingu landsvæða
19. fundur, 7.12.2015, 10:30-16:00
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu
Mætt: Anna Dóra Sæþórsdóttir (ADS), Anna G. Sverrisdóttir (AGS), Áki Guðni Karlsson (ÁGK), Einar Torfi Finnsson (ETF), Guðni Guðbergsson (GG), Sigrún Valbergsdóttir (SV) og Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir (SSJ).
Forföll: Sveinn Runólfsson (SR)
Gestur: Adam Hoffritz (AH).
Fundarritari: ADS
- Fundur settur kl. 10:30.
- Endurskoðun á leiðbeiningarblaði fyrir mat: Fyrir fundinn hafði ÁGK lagfært leiðbeiningarblaðið sem faghópurinn mun styðjast við í matsvinnunni. Faghópurinn fór sameinginlega yfir blaðið og breytti lítillega. ÁGK tók að sér að fara aftur yfir blaðið fyrir næsta fund og bera undir ETF að því loknu.
- Matsvinna: Faghópurinn vann við mat á virði ferðasvæða og áhrif virkjana þar á.
- Fundi slitið kl. 16:00.
ADS