Málþing og kynningarfundir á vegum rammaáætlunar
Kynningarfundur í Öldu, 18. maí 2022
Verkefnisstjórn rammaáætlunar boðaði til opins kynningarfundar um stöðu vinnunnar miðvikudaginn 18. maí kl 14:00-16:00. Fundurinn var haldinn í Öldu, Skúlagötu 4 og var einnig aðgengilegur í beinu streymi.
Upptöku frá fundinum er að finna hér fyrir neðan.
Dagskrá
14:00-14:30 - Jón Geir Pétursson formaður verkefnisstjórnar kynnir stöðu vinnunnar.
14:30-15:20 - Formenn faghópa kynna vinnu hópanna:
- Hafdís Hanna Ægisdóttir, formaður Faghóps 1 (náttúruverðmæti og menningarminjar)
- Anna Dóra Sæþórsdóttir, formaður Faghóps 2 (önnur auðlindanýting)
- Jón Ásgeir Kalmannsson, formaður Faghóps 3 (samfélagsleg áhrif)
- Páll Jensson, formaður Faghóps 4 (hagkvæmi og arðsemi)
15:20-16:00 - Umræður