Kynning mars/apríl 2016
Umsagnartímabili lauk þann 20. apríl 2016
Um ferlið
Opið samráðs- og kynningarferli
Verkefnisstjórn hefur nú kynnt drög að tillögum sínum um flokkun virkjunarkosta. Drögin voru kynnt þann 31. mars sl. á opnum kynningarfundi í Hörpu í Reykjavík.
Um leið og drögin að tillögu verkefnisstjórnar um flokkun virkjunarkosta voru kynnt hófst þriggja vikna kynningar- og samráðsferli, hið fyrra af tveimur slíkum samráðsferlum.
Þetta samráðsferli stendur dagana 31. mars - 20. apríl 2016. Meðan á samráðsferlinu stendur er öllum frjálst að senda verkefnisstjórn skriflegar athugasemdir um framkomin drög. Verkefnisstjórnin mun vinna úr öllum framkomnum athugasemdum. Hægt er að senda inn athugasemdir á þessari síðu.
Í lögum um rammaáætlun segir svo um þetta fyrra samráðsferli:
Að fengnum niðurstöðum faghópa vinnur verkefnisstjórn drög að tillögum um flokkun virkjunarkosta og afmörkun virkjunar- og verndarsvæða í samræmi við flokkunina. Hún skal leita samráðs við almenning og umsagna um drögin hjá viðeigandi stofnunum, stjórnvöldum ríkis og sveitarfélaga, félagasamtökum og hagsmunaaðilum (3. mgr. 10. gr laga nr. 48/2011).
Nánari upplýsingar um framhald vinnu við rammaáætlun má finna á tímalínunni. Athygli er vakin á að einnig verður unnt að senda inn umsagnir vegnar tillagna verkefnisstjórnar að flokkun virkjunarkosta í 12 vikna samráðsferli sem hefst 11. maí nk.
Kynningargögn
Drög að tillögu um flokkun virkjunarkosta
Drög að lokaskýrslu verkefnisstjórnar 3. áfanga, kynnt 31. mars 2016 - Verkefnisstjórn 3. áfanga rammaáætlunar
Frekari upplýsingar og gögn:
- Fréttatilkynning verkefnisstjórnar 3. áfanga rammaáætlunar, 31. mars 2016
- Kynningarfundur verkefnisstjórnar 3. áfanga, 31. mars 2016 - umfjöllun með hlekkjum á kynningu formanns og upptöku af fundinum
- Tilkynning um kynningarfundi verkefnisstjórnar á landsbyggðinni
- Rannsóknir á vegum faghópa 3. áfanga rammaáætlunar